28.11.1977
Efri deild: 18. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í B-deild Alþingistíðinda. (590)

85. mál, skráning og mat fasteigna

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á l. um skráningu og mat fasteigna. N. leggur til að frv. verði samþ. Fjarverandi afgreiðslu málsins voru Jón G. Sólnes og Axel Jónsson. Þar sem hér er ekki um efnisbreytingu að ræða, heldur fyrst og fremst um það að ræða að fresta gildistöku mats vegna ákveðinna byrjunarörðugleika, og ekki hefur tekist að afla gagna eða undirbúa málið eins og gert var ráð fyrir í upphafi sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál, en endurtek að n. leggur til að frv. verði samþ.