18.10.1977
Sameinað þing: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (66)
19. mál, sundlaug við Endurhæfingadeild Borgarspítalans
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Enda þótt. sjálfsagt sé að vera sammála hæstv. dómsmrh. um að miklar umr. með fyrirspurnum séu ekki æskilegar, er það ákvörðun Alþ. sjálfs við síðustu breytingu þingskapa að leyfa þm. að taka til máls með mjög stuttar ræður. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að þm. geri það, ef þeim sýnist og efnið gefur tilefni til, innan þeirra marka sem þingsköp setja.
Varðandi það, sem hér kom fram áðan, að hæstv. fyrirspyrjandi hefði getað hringt í ráðh. og fengið svar við fsp., þá vil ég benda á að þetta er grundvallarmisskilningur. Þetta geta allir þm. um allar fyrirspurnir. En þær eru ekki lagðar fram á Alþ. til að fá upplýsingar fyrir viðkomandi mann einan, heldur til að vekja athygli á málinu, spurningunni og svarinu. Ef það hefur tekist með fyrirspurn, þá sýnist mér að það hafi tekist í dag.
Og að lokum vil ég segja það, að því miður þurfti að bera fólkið úr hjólastólunum upp á pallana svo að það gæti hlustað á þessar umr.