05.12.1977
Efri deild: 21. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í B-deild Alþingistíðinda. (689)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 2. des. 1977.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Ólafur Þ. Þórðarson skólastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Steingrímur Hermannsson,

2. þm. Vestf.“

Ólafur Þ. Þórðarson hefur áður tekið sæti á Alþingi. Ég sé að hann er ekki viðstaddur í augnablikinu, en geri ráð fyrir, að hann komi þá og þegar, og býð hann velkominn til starfa. Umræður utan dagskrár.