07.12.1977
Efri deild: 23. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 989 í B-deild Alþingistíðinda. (731)
113. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég vil síður en svo mæla gegn frv. þessu um verðjöfnunargjald af raforku og vil alls ekki bregða fæti fyrir það, að Vestfirðingar fái eðlilegan og lögmætan hlut af verðjöfnunargjaldi til sin þrátt fyrir stofnun Orkubús Vestfjarða, En ég tek eindregið undir óskir hv. 5. þm. Austurl. og hv. 1, landsk. um miklu ítarlegri grg. en er að finna í aths. við lagafrv. þetta, því það er sannast sagna að við umr, um lög um Orkubú Vestfjarða gerðu fjölmargir þm., sem greiddu frv. atkv-, ýmsa fyrirvara í ræðum sínum, og miðuðu flestir að því að atfylgi þeirra við frv. væri bundið þeim skilmálum að með samþykkt þessa frv. yrði ekki í fyrsta lagi brugðið fæti fyrir markaða stefnu, sem virtist vera og virðist enn vera meirihlutafylgi við Alþ., — markaða stefnu um að orkuvinnsla og orkurannsóknir skuli vera á einni hendi, — né heldur brugðið fæti fyrir fyrirætlanir um samtengingu og raforkusölu um land allt á einu verði.
Ég vil rétt aðeins vekja athygli á því, ef ég kynni að geta sparað með því tíma við þessar umr., að hv. 5. þm. Austurl. var ekki í ræðu sinni áðan eða meginhluta ræðu sinnar að setja fram persónulegar skoðanir sínar á vandkvæðum þeim sem fylgdu Orkubúi Vestfjarða úr hlaði, heldur las hann upp úr álitsgerð frá Rafmagnsveitum ríkisins, sem okkur fannst ýmsum að væri afgreidd heldur léttilega af hæstv. iðnrh. og öðrum þeim sem fastast fylgdu fram frv. um Orkubú Vestfjarða.
Við umr. um frv. um Orkubú Vestfjarða lögðu mjög margir þm. áherslu á kröfuna um það, að fylgst yrði með því, með hvaða hætti eignir Rafmagnsveitna ríkisins yrðu metnar til verðs, og gerðu kröfur um það, að sú hlið málsins, sem lyti að fjármögnuninni, kæmi til kasta Alþingis.
Ég ítreka það, að ég vil ekki bregða fæti fyrir það að Vestfirðingar fái sinn hluta af verðjöfnunargjaldinu. En ég er því mjög svo andsnúinn, að öðrum landshlutum verði bundinn baggi í þessu sambandi með lagasetningu um að nákvæmlega 20% af verðjöfnunargjaldinu skuli renna til Vestfjarða. Þetta vil ég ekki láta gera, nema því aðeins að málið hafi verið grandskoðað, við höfum komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé rétt. Það kynnu að finnast aðrar leiðir en þessi til að tryggja Vestfirðingum nauðsynlegan styrk í viðureign sinni við ljón það sem fyrir fram var vitað að þeir mundu mæta á veginum, eftir að lög um Orkubú Vestfjarða kæmu til framkvæmda, og þeir vissu raunar af þarna.
Það var margt í sambandi við lög um Orkubú Vestfjarða, og hv. þm. þurfa ekki annað en að rifja það upp sjálfir með því að fletta upp í Alþingistíðindum, — það var ákaflega margt sem við ýmsir töldum að væri ekki nógu vel undirbúið í sambandi við það lagafrv. Sannleikurinn er sá, að það hefði ekki náð meiri hl. hér í d. ef ekki hefði veríð farinn bónarvegur að þm. að setja ekki hitt og þetta fyrir sig sem ljósara hefði átt að vera og betur hefði mátt vinna, og ég tel að við verðum að ganga úr skugga um það, að ákvæðið um þessa hlutfallstölu af verðjöfnunargjaldi til Orkubús Vestfjarða bindi okkur ekki óhæfilega bagga, valdi ekki frekari vandræðum en við kölluðum yfir okkur raunverulega með því að flýta svo mjög afgreiðslu frv. um Orkubú Vestfjarða, sem kom of seint til umfjöllunar hér.
Enn ítreka ég það: Ég greiddi atkvæði með þessu frv. Ég var einn af þeim sem hörmuðu að það skyldi ekki vera betur undirbúið. Ég var einn af þeim sem gagnrýndu þann losarabrag sem var á fskj. og upplýsingum sem frv. fylgdu. Og ég tek undir það með hv. 5. þm. Austurl. og 1. landsk. þm., að ég tel eðlilegt af þessum sökum að málinu verði vísað til fjh.- og viðskn.
Varðandi ummæli hæstv. iðnrh. um sérstaka afstöðu fyrrnefndra tveggja þm. til þeirra mála sem lúta að orkuöflun og orkurannsókn, og með tilvísun til ummæla hans um sérstaka n., sem nú fjallar um skipulag orkumála, leyfi ég mér að rifja það upp, að nú fyrir nokkrum dögum var rædd allítarlega í Sþ. þáltill., borin fram af þm. Framsfl., sem í öllum meginatriðum, öllu því sem máli skiptir, hnígur í sömu átt og mörkuð stefna Alþb. í skipulagi orkumála sem fram hefur komið einnig í þskj., sem hér hefur verið rætt og, eins og hv. þm. Jón Árm. Héðinsson hefur lýst yfir bæði í Sþ. og eins hér, samrýmist gjörsamlega í öllu því sem máli skiptir stefnu Alþfl., þannig að hv. 5. þm. Austurl. var aðeins að gera grein fyrir stefnu í skipulagi orkumála sem augljóst er að yfirgnæfandi meirihlutastuðningur er fyrir hér á hv. Alþ. Ég hef komist á þá skoðun við umr. hér, að sannarlega væri tímabært að skera úr um það við atkvgr. Ég sé ekki betur en það sé orðið beinlínis brýnt, vegna þess að valdamenn, þ. á m. hæstv. iðnrh., hann leyfir sér að koma hér í stólinn og vitna í samþykktir Sambands ísl. sveitarfélaga og Sambands ísl. rafveitna til stuðnings því máli sinu, að þm., sem eru þeirrar skoðunar að æskilegt sé að hafa á einni hendi orkuöflun og orkurannsóknir, hafi rangt fyrir sér og brjóti í bága við almannavilja. Af þeim sökum ítreka ég þetta. Ég vildi gjarnan að þessi þáltill. framsóknarmanna í Sþ. kæmi raunverulega til afgreiðslu nú á þessu þingi, þannig að úr því fengist skorið.
Og aðeins í lokin þetta: Ég óska þess, að fjh: og viðskn. fjalli um þetta frv. núna til að byrja með, vegna þess með hvaða hætti fjármál Orkubús Vestfjarða eru flækt inn í frv. um verðjöfnunargjald af raforku sem flutt hefur verið áður í svipuðum myndum, en í miklu einfaldari tilgangi.