14.12.1977
Neðri deild: 29. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1268 í B-deild Alþingistíðinda. (874)
129. mál, fjáröflun til vegagerðar
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Á bls. 210 stendur: „Endurskoðuð vegáætlun verður lögð fyrir haustþingið og gætu þá komið til einhverjar breytingar innbyrðis.“ Það stendur ekki að afgreiðsla vegáætlunar verði fyrir jólaleyfi. (HP: En verður hún lögð fyrir þingið?) Ég veit að verið er að undirbúa vegáætlun með tilliti til þess sem hér er lagt til. Um það, hvort hún verður lögð fyrir hv. þm. nú fyrir jól, skal ég ekki segja, en ég veit að hæstv. samgrh. vill að svo verði, hvort sem það tekst eða ekki.