Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 231, 113. löggjafarþing 118. mál: kvóti Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Lög nr. 103 12. desember 1990.

Lög um heimild til hækkunar á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.


1. gr.

     Ríkisstjórninni er heimilt að semja um hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum úr 59,6 milljónum SDR í 85,3 milljónir SDR. Seðlabanki Íslands skal leggja fram það fé sem þarf til hækkunar kvótans, sbr. 23. gr. laga nr. 36/1986, um Seðlabanka Íslands.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 5. desember 1990.