Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 470, 113. löggjafarþing 130. mál: Endurreisnar- og þróunarbanki Evrópu.
Lög nr. 126 31. desember 1990.

Lög um hlut Íslands í stofnfé Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu.


1. gr.

     Ríkisstjórninni er heimilt að greiða og ábyrgjast fjárhæðir þær er leiðir af stofnfjárskuldbindingum Íslands í Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 21. desember 1990.