Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 273, 113. löggjafarþing 92. mál: ábyrgð gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum.
Lög nr. 127 20. desember 1990.

Lög um ábyrgð gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum.


1. gr.

     Ríkisstjórninni er fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að ábyrgjast hluta Íslands, allt að fjárhæð 8 050 000 SDR, gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum vegna fjárfestingarlána og fjárfestingarábyrgða til verkefna utan Norðurlanda.

2. gr.

     Ríkisstjórninni er heimilt að ganga frá samningi við Norræna fjárfestingarbankann um ábyrgð skv. 1. gr.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 11. desember 1990.