Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 670, 115. löggjafarþing 32. mál: skipan gjaldeyris- og viðskiptamála (sala erlends gjaldeyris).
Lög nr. 11 6. apríl 1992.
Um sölu- og skilaskyldu erlends gjaldeyris, sem innlendir aðilar, þar með taldir þeir aðilar sem heimild hafa til að versla með erlendan gjaldeyri, eiga eða eignast fyrir seldar vörur, þjónustu eða á annan hátt, fer eftir reglum sem ráðuneytið setur.
Þingskjal 670, 115. löggjafarþing 32. mál: skipan gjaldeyris- og viðskiptamála (sala erlends gjaldeyris).
Lög nr. 11 6. apríl 1992.
Lög um breyting á lögum um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, nr. 63 31. maí 1979.
1. gr.
4. gr. laganna orðist svo:Um sölu- og skilaskyldu erlends gjaldeyris, sem innlendir aðilar, þar með taldir þeir aðilar sem heimild hafa til að versla með erlendan gjaldeyri, eiga eða eignast fyrir seldar vörur, þjónustu eða á annan hátt, fer eftir reglum sem ráðuneytið setur.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 30. mars 1992.