Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 441, 118. löggjafarþing 237. mál: ábyrgð á norrænum fjárfestingarlánum til verkefna utan Norðurlanda.
Lög nr. 142 29. desember 1994.

Lög um ábyrgð á norrænum fjárfestingarlánum til verkefna utan Norðurlanda.


1. gr.

     Ríkisstjórninni er fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að ábyrgjast hluta Íslands, að fjárhæð allt að 16.139.000 ECU, gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum vegna fjárfestingarlána og fjárfestingarábyrgða til verkefna utan Norðurlanda.

2. gr.

     Ríkisstjórninni er heimilt að ganga frá samningi við Norræna fjárfestingarbankann um ábyrgð skv. 1. gr.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 19. desember 1994.