Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 461, 121. löggjafarþing 24. mál: lánsfjárlög 1997.
Lög nr. 160 31. desember 1996.

Lánsfjárlög fyrir árið 1997.


I. KAFLI
Lántökur ríkissjóðs.

1. gr.

     Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að taka að láni allt að 12.500 m.kr. á árinu 1997.

2. gr.

     Lánsfé skv. 1. gr. skal ráðstafað í samræmi við ákvæði fjárlaga fyrir árið 1997 og þessara laga.

3. gr.

     Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að endurlána allt að 5.983 m.kr. af fjárhæð skv. 1. gr. til eftirtalinna aðila:
  1. Lánasjóðs íslenskra námsmanna, allt að 3.800 m.kr.
  2. Þróunarsjóðs sjávarútvegsins, allt að 130 m.kr.
  3. Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, allt að 1.420 m.kr.
  4. Alþjóðaflugþjónustunnar, allt að 100 m.kr.
  5. Bæjarveitna Vestmannaeyja, allt að 33 m.kr.
  6. Iðnaðarsvæðisins á Grundartanga, allt að 500 m.kr.


II. KAFLI
Ríkisábyrgðir.

4. gr.

     Eftirtöldum aðilum, sem heimild hafa í sérlögum til lántöku, er heimilt að nýta þær á árinu 1997 með þeim takmörkunum sem tilgreindar eru í 1.–8. tölul. þessarar greinar, sbr. 13. gr. laga nr. 84/1985, um breytingu á lögum nr. 52/1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga. Þeir eru:
  1. Landsvirkjun, allt að 9.000 m.kr., sbr. 14. gr. laga nr. 42/1983, um Landsvirkjun, með áorðnum breytingum.
  2. Byggingarsjóður ríkisins, allt að 2.640 m.kr., sbr. 9. gr. laga nr. 97/1993, um Húsnæðisstofnun ríkisins, með áorðnum breytingum.
  3. Byggingarsjóður verkamanna, allt að 4.500 m.kr., sbr. 48. gr. laga nr. 97/1993, um Húsnæðisstofnun ríkisins, með áorðnum breytingum.
  4. Húsbréfadeild Byggingarsjóðs ríkisins, allt að 14.000 m.kr., sbr. 19. gr. laga nr. 97/1993, um Húsnæðisstofnun ríkisins, með áorðnum breytingum.
  5. Stofnlánadeild landbúnaðarins, allt að 1.100 m.kr., sbr. 10. og 11. gr. laga nr. 45/1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, með áorðnum breytingum.
  6. Byggðastofnun, allt að 1.000 m.kr., sbr. 18. gr. laga nr. 64/1985, um Byggðastofnun, með áorðnum breytingum.
  7. Iðnlánasjóður, allt að 3.400 m.kr., sbr. 6., 10. og 17. gr. laga nr. 76/1987, um Iðnlánasjóð, með áorðnum breytingum.
  8. Ferðamálasjóður, allt að 150 m.kr., sbr. 22. gr. laga nr. 117/1994, um skipulag ferðamála, með áorðnum breytingum.


5. gr.

     Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að ábyrgjast með sjálfskuldarábyrgð lántöku eftirtalinna aðila:
  1. Hafnarsjóðs Grundartangahafnar, allt að 200 m.kr. vegna framkvæmda við Grundartanga.
  2. Hita- og vatnsveitu Akureyrar, allt að 2.100 m.kr. til skuldbreytingar eldri lána.
  3. Lyfjabúðar Háskóla Íslands, allt að 35 m.kr. til endurbóta á fasteigninni Austurstræti 16.


III. KAFLI
Ýmis ákvæði um lánsfjármál.

6. gr.

     Lántökur samkvæmt lögum þessum skulu fara fram innan lands eða utan.

7. gr.

     Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs getur heimilað þeim aðilum sem njóta ríkisábyrgðar á lántökum sínum:
  1. að taka lán í því skyni að endurgreiða fyrir gjalddaga eftirstöðvar eldri lána þegar hagstæðari kjör bjóðast;
  2. að stofna til skulda- og vaxtaskipta og nýta aðra möguleika sem bjóðast á markaði til þess að tryggja viðkomandi aðila gegn verulegum vaxtabreytingum;
  3. að taka ný lán til endurgreiðslu skammtímalána sem tekin eru á grundvelli heimilda í II. kafla, að hluta eða öllu leyti, án þess að lánssamningur um þau falli úr gildi, enda sé ekki dregið á slíka lánssamninga að nýju nema lagaheimild liggi fyrir.


8. gr.

     Hyggist aðilar, sem njóta ríkisábyrgðar á lántökum sínum, nýta heimildir skv. II. kafla eða 7. gr. skulu þeir gæta ákvæða 2. mgr. 7. gr. laga nr. 43/1990, um Lánasýslu ríkisins.

9. gr.

     Yfirtekin lán og ábyrgðir veittar á lántökum þriðja aðila, eða milliganga um töku lána þeirra, skulu rúmast innan þeirra heimilda sem tilgreindar eru í II. kafla.

10. gr.

     Erlendar fjárhæðir skulu miðast við kaupgengi íslensku krónunnar samkvæmt gengisskráningu Seðlabanka Íslands á staðfestingardegi lánsfjárlaga.

11. gr.

     Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að yfirtaka skuldir Stóðhestastöðvar ríkisins í Gunnarsholti.

12. gr.

     Fjármálaráðherra er heimilt að ábyrgjast mögulega skaðabótakröfu vegna notkunar lyfsins Thalidomide.

13. gr.

     Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að gefa út að nýju viðbót inn í eldri flokka spariskírteina ríkissjóðs sem ekki eru komnir á gjalddaga í þeim tilgangi að stækka slíka flokka og gera þá markaðshæfari. Skilmálar og kjör hlutdeildarskírteina (spariskírteina) slíkra viðbóta við eldri flokka skulu vera hin sömu og að breyttu breytanda, þ.e. útgáfudagur, fyrsti vaxtadagur, vextir, verðtryggingarákvæði, gjalddagi og þess háttar.

IV. KAFLI
Gildistökuákvæði.

14. gr.

     Lántökuheimildir og heimildir til ríkisábyrgða, sem tilgreindar eru í I.–III. kafla laga þessara, gilda á árinu 1997. Heimildir verða þó nýttar til 1. apríl 1998 standi sérstaklega á og samþykki fjármálaráðherra kemur til.

15. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 19. desember 1996.