1. fundur
Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins á 148. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, miðvikudaginn 17. janúar 2018
kl. 15:00
Mættir:
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (ÁslS) formaður, kl. 15:00Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 15:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi.
Nefndarritari: Arna Gerður Bang
Bókað:
1) Kosning varaformanns Kl. 15:00
Formaður lagði til að Ágúst Ólafur Ágústsson yrði varaformaður nefndarinnar. Fundarmenn samþykktu þá tillögu formanns. Afgreiðslu frestað til næsta fundar þar sem nefndin var ekki fullskipuð.
2) Kynning á starfi nefndarinnar Kl. 15:00
Ritari kynnti starf nefndarinnar og fundi framundan á árinu 2018.
3) Önnur mál Kl. 15:00
Íslandsdeild mun þiggja boð utanríkisráðherra um kynningu á helstu verkefnum sem tengjast störfum nefndarinnar í ráðuneytinu. Ritari mun senda fundarmönnum tillögu að fundartíma.
Fleira var ekki rætt.
Fundi slitið kl. 15:30