30.3.2005

Fundur stjórnarnefndar NATO-þingsins á Íslandi 1.-3. apríl

Dagana 1.-3. apríl mun stjórnarnefnd NATO-þingsins halda fund hér á landi. Íslandsdeild NATO-þingsins er gestgjafi fundarins. Stjórnarnefndarfundurinn verður haldinn á Hótel Nordica laugardaginn 2. apríl. Alls er búist við um 100 þátttakendum, bæði þingmönnum og starfsmönnum þjóðþinga aðildarríkjanna, auk embættismanna NATO-þingsins.

Stjórnarnefndin er skipuð formönnum landsdeilda aðildarríkjanna 26, auk formanna málefnanefnda og forsætisnefndar NATO-þingsins. Nefndin kemur saman til fundar þrisvar sinnum á ári; í tengslum við vorþing NATO-þingsins, í tengslum við ársfund þess að hausti og einu sinni snemma vors í einu aðildarríkja NATO. Síðast var efnt til stjórnarnefndarfundar hér á landi árið 1997.

Forseti NATO-þingsins er franski þingmaðurinn Pierre Lellouche. Hann tók við embættinu af bandaríska þingmanninum Douglas Bereuter á ársfundi NATO-þingsins í Feneyjum í nóvember á síðasta ári. Bretinn Simon Lunn er framkvæmdastjóri þingsins. Guðmundur Árni Stefánsson, formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins, og Einar Oddur Kristjánsson varaformaður hennar sitja fundinn af hálfu Íslandsdeildarinnar. Auk þeirra er Magnús Stefánsson fulltrúi í Íslandsdeildinni.