2.4.2006

Forseti Alþingis í opinberri heimsókn á Írlandi 2.-6. apríl 2006

Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, mun heimsækja Írland 2.-6. apríl í boði forseta neðri deildar írska þingsins. Með þingforseta í för verða eiginmaður hennar, Kristinn Björnsson, og þingmennirnir Rannveig Guðmundsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Þórunn Sveinbjarnardóttir, ásamt skrifstofustjóra Alþingis og forstöðumanni alþjóðasviðs.
 
Sendinefndin heimsækir kjördæmi írska þingforsetans og hittir þar m.a. borgarfulltrúa. Í Dyflinni á sendinefndin fundi með forsetum beggja deilda írska þingsins, þingmönnum í Evrópunefnd og forystumönnum stjórnmálaflokka á Írlandi. Þá mun sendinefndin ræða við forseta Írlands, varaforsætisráðherra sem jafnframt er heilbrigðisráðherra og aðstoðarutanríkisráðherra sem fer með Evrópumál.