9.4.2006

Heimsókn forseta skoska þingsins til Íslands 10.-13. apríl 2006

Forseti skoska þingsins, George Reid, kemur í opinbera heimsókn til Íslands í boði Sólveigar Pétursdóttur, forseta Alþingis, dagana 10.-13. apríl næstkomandi. Í för með skoska þingforsetanum verður sjö manna sendinefnd sem í eru þingmennirnir Bill Aitken, Scott Barrie, Brian Monteith, Jeremy Purvis og Andrew Welsh, auk Roys A. S. Devons, prótókollstjóra á alþjóðaskrifstofu þingsins og Jane McEwan, ritara skoska þingforsetans.
 
Í heimsókninni mun George Reid og sendinefnd hans eiga fundi með forseta Alþingis og fulltrúum þingflokka, utanríkismálanefndar og fjárlaganefndar. Þá munu þau heimsækja forseta Íslands á Bessastaði. Sendinefndin fundar með sjávarútvegsráðherra, ferðamálastjóra og embættismönnum á sviði heilbrigðismála. Miðvikudaginn 12. apríl fer þingforsetinn í þjóðgarðinn á Þingvöllum og heldur svo í kynnisferð um Snæfellsnes. Heimsókninni lýkur fimmtudaginn 13. apríl.