3.7.2006

Forseti Alþingis viðstaddur setningu Manarþings 5. júlí

Forseti Alþingis, Sólveig Pétursdóttir, verður ásamt eiginmanni sínum gestur við þingsetningu á eynni Mön 5. júlí. Með þeim í för er forstöðumaður alþjóðasviðs Alþingis. Þinghaldið á Mön fer fram undir berum himni og er kennt við Tynwald eða Þingvelli á eynni. Athöfnin er árlegur viðburður á þjóðhátíðardegi Manar 5. júlí og á rætur sínar að rekja aftur til víkingaaldar.