4.7.2007

Forseti Alþingis viðstaddur setningu Manarþings fimmtudaginn 5. júlí

Forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, verður ásamt eiginkonu sinni Hallgerði Gunnarsdóttur, gestur við þingsetningu á eyjunni Mön 5. júlí. Þinghaldið á Mön fer fram undir berum himni og er kennt við Tynwald eða Þingvelli á eynni. Athöfnin er árlegur viðburður á þjóðhátíðardegi Manar og á rætur sínar að rekja aftur til víkingaaldar.