27.9.2007

Heimsókn þingforseta Norðurlanda og Eystrasaltsríkja til Georgíu

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, var í opinberri heimsókn í Georgíu, ásamt þingforsetum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, dagana 24.-25. september sl. Ferðin var hluti af sameiginlegu verkefni þingforseta landanna og var markmið hennar að styðja við lýðræðisþróunina í Georgíu. Þingforsetarnir áttu m.a. fundi með Saakashvili, forseta Georgíu, Burjanadze, forseta Georgíuþings, Noghaideli, forsætisráðherra og Ilia II. partíarka georgísku réttrúnaðarkirkjunnar. Einnig átti sendinefndin fundi með öðrum ráðamönnum og fulltrúm stjórnarandstöðu.

thingforsetar_georgiu

Á myndinni eru þingforsetar Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna ásamt Nino Burjanadze forseti þingsins í Georgíu og Ilia II. patríarki georgísku rétttrúnaðarkirkjunnar.

Í sameiginlegri yfirlýsingu sem þingforsetarnir gáfu eftir viðræðurnar kemur m.a. fram að gagnkvæm ánægja er með það skref sem stigið hefur verið til að styrkja tengslin við Georgíu. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að þing þessara landa haldi áfram að styðja við lýðræðisþróunina í Georgíu enda er árangur þeirrar þróunar forsenda aukinnar þátttöku landsins í alþjóðlegu samstarfi lýðræðisþjóða.

Þá er í yfirlýsingunni lögð áhersla á mikilvægi þess að ná friðsamlegri lausn á átökum í Suður-Ossetíu og Abkasíu og rétt Georgíustjórnar til að stjórna öllu því landsvæði ríkisins sem viðurkennt hefur verið af alþjóðasamfélaginu sem hluti af Georgíu. Þingforsetar lögðu einnig áherslu á hið mikilvæga hlutverk sem Georgía hlýtur að gegna í þróun Suður-Kákasussvæðisins.

Í viðræðum sínum við ráðmenn í Georgíu lagði sendinefndin áherslu á mikilvægi þess að vel takist til um framkvæmd forseta- og þingkosninga í landinu á næsta ári þar sem slíkt er forsenda fyrir áframhaldandi þátttöku Georgíu í samstarfi lýðræðisþjóða. Vakin er sérstök athygli á framlagi Georgíu til fjölþjóðlegra verkefna, t.a.m. á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, sem hefur verið margþætt og ljóst er að vilji Georgíu stendur til nánara samstarfs á vettvangi NATO og ESB. Í yfirlýsingunni er hins vegar bent á að áframhaldandi endurbætur í efnahag og stjórnsýslu eru forsenda slíks samstarfs. Lýstu þingforsetar yfir stuðningi við þær stjórnmálalegu og efnahagslegu endurbætur sem nú eiga sér stað í landinu.

Þingforsetarnir tóku þátt í tveimur pallborðsumræðum meðan á heimsókninni stóð, en þær umræðurnar sóttu þingmenn og fulltrúar ýmissa félagasamtaka, ásamt fjölmiðlafólki. Í fyrri pallborðsumræðunum var fjallað um mikilvægi þess hlutverk s sem stjórnarnastaða gegnir í lýðræðissamfélagi. Í síðari pallborðsumræðunum var fjallað um ferðaþjónustu og þýðingu hennar í efnahagskerfinu, en Georgía hefur mikla möguleika í þeim efnum.