Fundur þingmannanefndar EES 28.-29. október
Þingmannanefnd EES kemur saman til fundar í Þrándheimi 28.-29. október 2009. Þar verður m.a. fjallað um þróun og framkvæmd EES-samningsins, yfirstandandi fjármálakreppu, umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og samstarf sveita- og héraðsstjórna innan EES.
Fyrir hönd Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA sækja fundinn þau Árni Þór Sigurðsson formaður, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Valgerður Bjarnadóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir.