13.11.2009

Ársfundur NATO-þingsins 13.-17. nóvember

NATO-þingið kemur saman til ársfundar í Edinborg 13.–18. nóvember 2009. Þar verða tekin til umræðu málefni sem eru ofarlega a baugi innan Atlantshafsbandalagsins, t.d. framtíðarstefna bandalagsins, aðgerðir NATO í Afganistan og samskipti NATO við Rússland, orkuöryggi, leiðir til að hefta útbreiðslu kjarnavopna og áhrif fjármálakreppunnar á varnarmál.

Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir.