14.2.2012

Fundur þingmannanefndar um norðurskautsmál 14.-15. febrúar í Stokkhólmi

Fundur þingmannanefndar um norðurskautsmál verður haldinn í Stokkhólmi 14.-15. febrúar.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður Íslandsdeildar þingmannanefndarinnar, sækir fundinn fyrir hönd Alþingis.

Á fundinum verður m.a. rætt um samstarf og stjórnskipulag á norðurslóðum, loftslagsbreytingar og heilsufar.