11.10.2013

Ársfundur NATO-þingsins 11.-14. október

NATO-þingið kemur saman til ársfundar í Dubrovnik 11.–14. október 2013.

Þar verða tekin til umræðu málefni sem eru ofarlega á baugi innan Atlantshafsbandalagsins, t.d. aðgerðir NATO í Afganistan og ástandið í Sýrlandi og notkun efnavopna. Einnig verður rætt um norðurslóðamál og samskipti NATO og Rússlands.

Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Þórunn Egilsdóttir formaður, Össur Skarphéðinsson varaformaður og Birgir Ármannsson.