31.8.2017

Ráðherrar lýsa yfir vilja til aukins samstarfs landanna á fundi Vestnorræna ráðsins

Ársfundur  Vestnorræna ráðsins , samstarfsráðs þjóðþinga Færeyja, Grænlands og Íslands hófst í morgun með ávarpi forseta Alþingis, Unnar Brár Konráðsdóttur, síðan tók Bryndís Haraldsdóttir, formaður Vestnorræna ráðsins við og setti fundinn. Utanríkisráðherrar landanna þriggja tóku þátt í fundinum og lýstu m.a. vilja til auka fríverslun á milli landanna.

Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Alþingi 2017Forseti Alþingis, Unnur Brá Konráðsdóttir, flutti ávarp við upphaf ársfundarins. ©Bragi Þór Jósefsson

Á ársfundi Vestnorræna ráðsins, samstarfsráðs þjóðþinga Færeyja, Grænlands og Íslands,  í dag lýstu utanríkisráðherrar Íslands, Grænlands og Færeyja yfir vilja til að vinna gagngert að því auka samstarf landanna þriggja á ýmsum sviðum. Sérstök áhersla er lögð á að auka fríverslun á milli landanna, þar á meðal með því að skoða möguleikann á vestnorrænum fríverslunarsamningi og vestnorrænu viðskiptaráði. Ráðgert er að samstarfssamningur þessa efnis verði undirritaður á fundi ráðherranna síðar í dag. Sérstakur vinnuhópur verður settur á fót sem mun hafa það verkefni að greina hvar möguleikar til aukins samstarfs helst liggja. Þá er ráðgert að utanríkisráðherra landanna hittist árlega til að ræða samstarf sitt. Vestnorræna ráðið fagnar samstarfssamningi ráðherr­anna sem er í beinu sam­ræmi við ályktanir ráðsins frá árunum 2012-2015, sem kalla gagngert eftir auknu samstarfi landanna um málefni norðurslóða, fríverslun, samgöngur og innviði.

Þátttakendur á ársfundi Vestnorrænar ráðsins í Alþingi 2017Þátttakendur á ársfundi Vestnorrænar ráðsins í Alþingi 2017. ©Bragi Þór Jósefsson

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, sagði Vestur-Norðurlönd geta aukið og dýpkað samstarf sitt verulega, þar á meðal um málefni norðurslóða, og að íslensk stjórnvöld væru því mjög fylgjandi.

Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins og utanríkisráðherrar, Íslands, Færeyja og GrænlandsForsætisnefnd Vestnorræna ráðsins ásamt utanríkisráðherrum landanna þriggja.  ©Bragi Þór Jósefsson