10.1.2018

Forseti Alþingis fundar með Kínaforseta

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, átti í dag fund með Xi Jinping, forseta Kína, ásamt öðrum forsetum þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Á fundinum lagði Steingrímur áherslu á mikilvægi góðrar samvinnu við Kína, einkum á sviði umhverfisverndar og baráttu gegn hnattrænni hlýnun. Þá vakti hann athygli á þeirri aukningu viðskipta sem orðið hefur milli landanna, ekki síst í kjölfar fríverslunarsamnings Íslands og Kína, og fjölgunar kínverskra ferðamanna á Íslandi undanfarin ár. Einnig ræddu þeir möguleika á frekara samstarfi um málefni Norðurslóða en Kínverjar og Íslendingar eiga þegar í margháttuðu samstarfi, svo sem á sviði norðurljósarannsókna. Kínaforseti fagnaði samstarfi þjóðanna og gerði á fundinum grein fyrir helstu stefnumálum sínum, meðal annars um uppbygginu samgöngunets í Mið-Asíu, hið svonefnda frumkvæði um belti og braut (e. Belt and Road Initiative).

Undanfarna daga hefur forseti Alþingis, ásamt þingforsetum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, átt fundi með Zhang Dejang, forseta kínverska þingsins, og öðrum ráðamönnum í Peking. Í framhaldi af fundum í Peking halda þingforsetarnir til Sichuan héraðs þar sem þeir munu hitta leiðtoga sex héraðsstjórna, frá Sichuan, Yunnan, Guizhou, Chongqing, Shaanxi og Tíbet. Í Chengdu munu forsetarnir einnig fá sérstaka kynningu á verkefni sem snýr að mögulegri samvinnu á sviði umhverfismála og uppbyggingar vistgarðs. Þá eru fyrirhugaðar heimsóknir í norræn fyrirtæki með starfsemi í Sichuan héraði.

Forsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á fundi með forseta KínaForsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á fundi í dag með Xi Jinping, forseta Kína. ©NPC/Bi Nan