6.5.2022

Ávarp forseta Úkraínu í þingsal Alþingis

Volodymyr Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði alþingismenn og íslensku þjóðina við sérstaka athöfn í þingsal í dag.

Ávarp Zelenskís er sögulegt því að þetta er í fyrsta skipti sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp í þingsal Alþingis.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, stýrði athöfninni. Þá mælti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, nokkur orð fyrir hönd íslensku þjóðarinnar.

Að loknu ávarpi Zelenskís, tók forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, til máls og ávarpaði forseta Úkraínu. 

BAKJogThK2GudniogKristrunGudniTHLofaklapp

Ljósmyndir: Sigurjón Ragnar