Forseti Alþingis sækir Lettland heim
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, sækir Ríga í Lettlandi heim í dag, 27. október, í boði Ināra Mūrniece þingforseta. Seimas, þjóðþing Lettlands, fagnar 100 ára afmæli í ár og eru Lettar jafnframt gestgjafar Eystrasaltsþingsins sem forseti Alþingis mun ávarpa við setningarathöfn á morgun, föstudag.