29.4.2015

Fundur sameigin­legrar þingmanna­nefndar Íslands og ESB

Fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og ESB fer fram í Evrópuþinginu í Strassborg 29. apríl. Á fundinum verður m.a. fjallað um samskipti Íslands og ESB, viðbrögð við fjármálakreppunni, ástandið í Úkraínu og fríverslunarviðræður ESB og Bandaríkjanna.

Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og ESB var stofnuð árið 2010 eftir að aðildarviðræður Íslands við ESB hófust. Í kjölfar þess að aðildarviðræðum var hætt árið 2013 var fundum nefndarinnar fækkað í einn á ári og líkt og tíðkaðist á árunum 1987-2010 en þá áttu Alþingi og Evrópuþingið árlega samráðsfundi.

Af hálfu Alþingis sækja fundinn Birgir Ármannsson, starfandi formaður, Árni Páll Árnason, Bjarkey Gunnarsdóttir, Óttarr Proppé, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Vilhjálmur Bjarnason og Willum Þór Þórsson.