18.6.2016

Hátíðarræða forseta Alþingis í Winnipeg á 17. júní 2016

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, flutti í gær hátíðarræðu á þjóðhátíðarsamkomu Vestur-Íslendinga við styttu Jóns Sigurðssonar fyrir framan þinghúsið í Winnipeg.  Í ræðu sinni lagði hann meðal annars áherslu á hin sterku tengsl milli Íslands og Kanada sem þakka má öflugu samfélagi Vestur-Íslendinga og tækifæri til aukinnar samvinnu.

Forseti Alþingis flytur þjóðhátíðarávarp í Winnipeg 17. júní 2016

Í gærdag átti forseti Alþingis fund með forseta fylkisþings Manitoba, Myrnu Driedger, og Rick Mantey, ráðherra alþjóðasamskipta.  Á báðum fundum kom fram einlægur áhugi á að efla samskiptin við Ísland á sviði menningar, stjórnmála og viðskipta.

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, og Sigrún J. Þórisdóttir, eiginkona hans, eru heiðursgestir félags Vestur-Íslendinga í Kanada 14.-19. júní 2016. Þau hafa á meðan dvöl þeirra stendur heimsótt Íslendingabyggðir í Winnipeg og Norður-Dakóta.  Í dag, 18. júní, munu þau heimsækja Gimli, Árborg og Riverton þar sem meðal annars fer fram árlegt kvennahlaup, að íslenskum sið. 

Forseti Alþingis í KanadaÞórður Bjarni Guðjónsson, aðalræðismaður Íslands í Winnipeg, Myrna Driedger forseti fylkisþingsins  og Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis.