24.5.2018

Heimsókn laga- og mannréttindanefndar Evrópuráðsþingsins í Alþingi

Laga- og mannréttindanefnd Evrópuráðsþingsins heimsótti Alþingi í gær en nefndin fundaði í Hörpu 22.–23. maí. 

Opin málstofa undir yfirskriftinni Reynsla Íslands af baráttu gegn spillingu meðal þingmanna var haldin eftir hádegi miðvikudaginn 23. maí. Fyrirlesarar voru Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður og varaformaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, og Jón Ólafsson, formaður Gagnsæis og formaður stýrihóps forsætisráðuneytisins um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu. Fjallað var um framfylgd Íslands á tilmælum úr fjórðu úttekt GRECO, samtaka ríkja Evrópuráðsins gegn spillingu. Þessi hluti fundarins var opinn fjölmiðlum. 

Meðal annarra sem ávörpuðu fund laga- og mannréttindanefndar Evrópuráðsþingsins voru Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, alþingismaður og formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins.Laga- og mannrettindanefnd Evropuradsthingsins 2018