7.10.2011

Ársfundur NATO-þingsins 7.-10. október

NATO-þingið kemur saman til ársfundar í Búkarest 7.–10. október 2011. Þar verða tekin til umræðu málefni sem eru ofarlega á baugi innan Atlantshafsbandalagsins, t.d. aðgerðir NATO í Afganistan og ástandið í Norður-Afríku og Miðausturlöndum. Einnig verður rætt um nýja grunnstefnu NATO sem samþykkt var á leiðtogafundi NATO í Lissabon í nóvember 2010.

Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir.