23.7.2009

Starfshópur utanríkismálanefndar um Evrópumál

Utanríkismálanefnd Alþingis hefur skipað sérstakan starfshóp um Evrópumál í samræmi við nefndarálit meiri hluta nefndarinnar um tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Starfshópnum, sem skipaður er einum fulltrúa hvers stjórnmálaflokks, er ætlað að funda reglubundið með utanríkisráðherra og samninganefnd Íslands auk þess að sitja í samráðshópi ríkisstjórnarinnar og hagsmunaaðila.

Eftirfarandi þingmenn í utanríkismálanefnd voru skipaðir í starfshópinn:

Árni Þór Sigurðsson formaður (Guðfríður Lilja Grétarsdóttir til vara),
Birgitta Jónsdóttir (Margrét Tryggvadóttir til vara),
Bjarni Benediktsson (Þorgerður K. Gunnarsdóttir til vara),
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (Gunnar Bragi Sveinsson til vara),
Þórunn Sveinbjarnardóttir (Valgerður Bjarnadóttir til vara).