Fundur þingmannanefndar og ráðherra EFTA 22. júní
Þingmannanefnd og ráðherrar EFTA koma saman til fundar í Hamar í Noregi 22. júní.
Fyrir hönd Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA sækja fundinn Árni Þór Sigurðsson formaður og Valgerður Bjarnadóttir varaformaður, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Helstu mál fundarins eru annars vegar þróun og framkvæmd EES-samningsins og hins vegar samstarf EFTA við ríki utan EES á sviði fríverslunar. Auk þess mun þingmannanefndin eiga fund með ráðgjafarnefnd EFTA.