14.8.2013

Fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja 15.-16. ágúst

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, sækir árlegan fund forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem haldinn verður í Ilulissat á Grænlandi, í boði danska þingsins, 15.-16. ágúst 2013.

Þingforsetarnir munu meðal annars ræða það sem efst er á baugi í stjórnmálum og starfi þjóðþinganna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum. Einnig verður sérstök umræða um varnarsamvinnu landanna, samstarf við Austur Evrópuríki og aðgengi að þjóðþingunum. Þá flytur forseti Alþingis framsögu um stjórnarskrárbreytingar og hvaða lærdóm megi draga af ferlinu á Íslandi.