18.8.2014

Umræður á fundi forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

Fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja stendur nú yfir í Palanga í Litháen. Sérstakur gestur á fundinum er Olexander Turchynov, forseti úkraínska þingsins, og gerði hann á fundinum í dag grein fyrir stöðu mála í Úkraínu.

Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, lýsti því yfir að fullur stuðningur væri af hálfu Íslands við Úkraínu og að Rússum bæri að virða landamæri Úkraínu. Hann minnti á að íslenski utanríkisráðherrann, Gunnar Bragi Sveinsson, hefði tvívegis heimsótt Úkraínu á síðastliðnum mánuðum. Hann lagði áherslu á að í hópi þingforsetanna væri úkraínski þingforsetinn í hópi vina. Einar gerði meðal annars að umtalsefni efnahagsmál í Úkraínu og spurði þingforsetann á hvaða hátt Norðurlandaþjóðirnar og Eystrasaltsríkin gætu stutt úkraínsku þjóðina. Úkraínski þingforsetinn sagði að hernaðarleg og tæknileg aðstoð væri það sem munaði mest um og bætti við að ef Rússar yrðu ekki stöðvaðir við landamæri Úkraínu þá héldu þeir lengra áfram.

Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, sækir árlegan fund forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem haldinn er í Palanga í Litháen, í boði litháíska þingsins, 18.-20. ágúst 2014.

Til umræðu er það sem efst er á baugi í stjórnmálum og starfi þjóðþinganna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum. Einnig verður sérstök umræða um svæðisbundin varnarmál og stöðu efnahagsmála í Evrópu.

Forseti Alþingis flytur framsögu um stefnumótun í málefnum norðurslóða og gerir grein fyrir störfum undirbúningshóps um alheimsráðstefnu þingforseta sem fyrirhugað er að halda haustið 2015.