28.6.2011

Fundur vestnorrænna þingforseta í Vágum í Færeyjum

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sækir fund vestnorrænna þingforseta í Vágum í Færeyjum 28. júní 2011, í boði Hergeirs Nielsens, forseta færeyska Lögþingsins. Fundinn sækir einnig Josef Motzfeldt, forseti grænlenska þingsins.
 

Á fundinum munu þingforsetar m.a. ræða samstarf vestnorrænu þinganna og þau mál sem efst eru á baugi þingunum. Þá munu þingforsetarnir jafnframt ræða samstarfið á vettvangi Vestnorræna ráðsins og starf þingmannanefndar um Hoyvíkursamninginn.