24.9.2012

Opinber heimsókn forseta þjóðþings Finnlands til Alþingis 23.-25. september 2012

Forseti þjóðþings Finnlands, Eero Heinäluoma, er í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 23.-25. september 2012 í boði forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur.
 
Hann mun eiga fundi með forseta Alþingis og fulltrúum þingflokka. Jafnframt heimsækir hann forseta Íslands á Bessastaði meðan á dvöl hans stendur.