28.10.2013

Fundur þingmannanefndar EES

Þingmannanefnd EES kemur saman til fundar í Vaduz í Liechtenstein 28. október 2013. Á fundinum verður m.a. fjallað um málefni norðurslóða, réttindi borgara innan ESB og EES, loftslags- og orkumál og fríverslunarviðræður ESB og Bandaríkjanna.
 

Fyrir hönd Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sækja fundinn þau Guðlaugur Þór Þórðarson formaður, Árni Þór Sigurðsson, Katrín Júlíusdóttir, Vilhjálmur Bjarnason og Willum Þór Þórsson.