26.6.2013

Fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins í Reykjavík 27. júní kl. 10.00

Sjötti fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins (ESB) verður haldinn í Reykjavík fimmtudaginn 27. júní, á Icelandair hótel Reykjavík Natura. Fundurinn hefst kl. 10.00.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mun taka þátt í sérstakri umræðu á fundinum um samskipti Íslands og ESB auk fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB og ráðherraráðs ESB.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, mun taka þátt í umræðu um viðbrögð Íslands og Evrópusambandsins við fjármála- og efnahagskreppunni.

Á fundinum verður einnig rætt um sjávarútvegsstefnur Íslands og ESB, og samstarf Íslands og Evrópusambandsins um málefni norðurslóða.

Fundurinn er opinn fjölmiðlum.

Af hálfu Alþingis er ráðgert að eftirfarandi þingmenn þátt taki í fundinum: Birgir Ármannsson, formaður, Árni Páll Árnason, Ásmundur Einar Daðason, Birgitta Jónsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Óttarr Proppé, Sigríður Á. Andersen, Vilhjálmur Bjarnason og Willum Þór Þórsson.

Nánari upplýsingar um sameiginlegu þingmannanefndina má finna á vef Alþingis.