28.1.2013

Fundur formanna Evrópunefnda þjóðþinga ESB (COSAC) 28. janúar

Formenn Evrópunefnda þjóðþinga ESB-ríkjanna, umsóknarríkja og Evrópuþingsins koma saman til fundar í Dyflinni mánudaginn 28. janúar.
Helstu dagskrárefni fundarins eru formennskuáætlun Íra í ráðherraráði ESB og framtíð efnahags- og gjaldmiðilssamvinnu í Evrópu. Fundir COSAC fara fram í þeim aðildarríkjum sem fara með sex mánaða formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins.

Af hálfu utanríkismálanefndar sækir Árni Þór Sigurðsson formaður fundinn.