20.11.2012

Fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins 21.-22. nóvember

Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins kemur saman til fundar í Evrópuþinginu í Strassborg 21.-22. nóvember 2012. Á dagskrá fundarins eru samskipti Íslands og ESB með áherslu á stöðu yfirstandandi aðildarviðræðna auk þess sem fjallað verður um sjávarútvegsmál, viðbrögð stjórnvalda í ESB og á Íslandi við fjármálakreppunni og ástandið í Norður-Afríku og fyrir botni Miðjarðarhafs.

Af hálfu Alþingis sækja fundinn Skúli Helgason, formaður sendinefndar, Birgitta Jónsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Jón Bjarnason, Ragnheiður E. Árnadóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir.

Þegar ríki sækja um aðild að Evrópusambandinu er sameiginlegri þingmannanefnd Evrópuþingsins og þjóðþings viðkomandi umsóknarríkis komið á fót. Hlutverk slíkrar nefndar er einkum að fylgjast með aðildarviðræðuferlinu. Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins var stofnuð í október 2010. Nefndin er skipuð níu þingmönnum frá Evrópuþinginu og níu alþingismönnum. Auk þess situr sérstakur fulltrúi utanríkismálanefndar Evrópuþingsins, sem fylgist með umsóknarferli Íslands, fundi nefndarinnar. Sameiginlega þingmannanefndin kemur saman tvisvar á ári, til skiptis á Íslandi og í starfsstöðvum Evrópuþingsins í Brussel eða Strassborg.

Nánari upplýsingar um sameiginlegu þingmannanefndina má sjá á vef Alþingis.