1.3.2022

Sendiherra Úkraínu hitti fulltrúa utanríkismálanefndar

Sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, Olga Dibrova, átti óformlegan fund með fulltrúum utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Til umræðu var hið alvarlega ástand sem skapast hefur í Úkraínu vegna innrásar Rússa.

Heimsokn-sendiherra-Ukrainu-01032022

Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, fyrir miðri mynd, ásamt eiginmanni sínum og fulltrúum í utanríkismálanefnd Alþingis.