5.5.2022

Volodymyr Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpar alþingismenn og íslensku þjóðina

Volodymyr Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpar alþingismenn og íslensku þjóðina föstudaginn 6. maí kl. 14.00 í gegnum fjarfundabúnað við sérstaka athöfn í þingsal Alþingis. Hægt verður að fylgjast með ávarpinu í sjónvarpi, á vef Alþingis og öðrum vefmiðlum.

Ávarp Zelenskís er einstakur viðburður því þetta verður í fyrsta skipti sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp í þingsal Alþingis.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, mun stýra þessari sérstöku athöfn og talar við upphaf hennar. Þá mælir forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, nokkur orð fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Síðan tekur Zelenskí til máls. Að loknu ávarpi Zelenskís ávarpar forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, forseta Úkraínu.

Ísland hefur frá upphafi fordæmt tilefnislausa innrás Rússlands í Úkraínu og lýst yfir eindregnum stuðningi við úkraínsku þjóðina og þarlend stjórnvöld. Ísland tekur fullan þátt í alþjóðlegum þvingunaraðgerðum gegn Rússlandi, styður við mannúðaraðgerðir Sameinuðu þjóðanna og annarra stofnana og tekur á móti fólki á flótta frá Úkraínu. Þá hefur Ísland haft milligöngu um loftflutninga búnaðar, þar á meðal hergagna, í tengslum við varnir Úkraínu. Ísland mun áfram leita leiða til þess að styðja við Úkraínu með öllum þeim ráðum sem stjórnvöldum eru tiltæk og í samræmi við þær þarfir sem uppi eru í Úkraínu.