Hugmyndir um breyt. á l. um skyldutryggingu lífeyrisréttinda o.fl.

(1311147)
Efnahags- og viðskiptanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
15.01.2014 43. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Hugmyndir um breyt. á l. um skyldutryggingu lífeyrisréttinda o.fl.
Á fund nefndarinnar komu Gylfi Magnússon og Lilja Sturludóttir fulltrúar í nefnd um endurskoðun fjárfestingarheimilda lífeyrissjóðanna. Gestirnir kynntu nefndinni starf nefndar um endurskoðun fjárfestingarheimilda lífeyrissjóðanna og svöruðu spurningum nefndarmanna.
25.11.2013 22. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Hugmyndir um breyt. á l. um skyldutryggingu lífeyrisréttinda o.fl.
Á fund nefndarinnar kom Þórey Þórðardóttir frá Landssambandi lífeyrissjóða. Gesturinn kynnti nefndinni afstöðu til hugmynda um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og svaraði spurningum nefndarmanna að því loknu.
22.11.2013 21. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Hugmyndir um breyt. á l. um skyldutryggingu lífeyrisréttinda o.fl.
Á fund nefndarinnar komu Magnús Kristinn Ásgeirsson og Magnús Harðarson frá Kauphöll Íslands. Gestirnir kynntu nefndinni hugmyndir að breytingum á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og svöruðu spurningum nefndarmanna.