Kynning á starfsemi Fjármálaráðs

(1608013)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
10.02.2017 26. fundur fjárlaganefndar Kynning á starfsemi Fjármálaráðs
Til fundar við nefndina komu aðalmenn og varamenn í fjármálaráði, þau Gunnar Haraldsson, Axel Hall, Ásgeir Brynjar Torfason, Arna Ólafsson, Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir og Þóra Helgadóttir. Þau lögðu fram álitsgerð fjármálaráðs um tillögu til þingsályktunar um fjármálastefnu fyrir árin 2017-2022 ásamt kynningarefni og bréfi dags. 9. febrúar 2017. Gestirnir kynntu álitsgerðina og svöruðu spurningum nefndarmanna um hana.
17.08.2016 74. fundur fjárlaganefndar Fjármálaráð
Til fundarins komu frá fjármálaráði Gunnar Haraldsson, Ásgeir Brynjar Torfason og Axel Hall. Fjármálaráð var skipað síðastliðið vor og kynntu gestirnir skipulag þess og fleira í væntanlegri starfsemi og svöruðu spurningum nefndarmanna.