Úttekt á málefnum Íslandspósts

(1901037)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
20.09.2019 3. fundur fjárlaganefndar Úttekt á málefnum Íslandspósts
Til fundarins komu Sigurður Helgi Helgason, Jón Gunnar Vilhelmsson og Steinunn Sigvaldadóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Rætt var um fjárhagsmálefni Íslandspósts ohf.
12:31 - 12:59 matarhlé.
12.03.2019 46. fundur fjárlaganefndar Úttekt á málefnum Íslandspósts
Til fundarins kom Jón Gunnar Vilhelmsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hann lagði fram minnisblað um málefni Íslandspósts ohf. dagsett 12. mars 2019 og svaraði spurningum nefndarmanna um málefni fyrirtækisins.
15.01.2019 33. fundur fjárlaganefndar Úttekt á málefnum Íslandspósts
Samþykkt var samhljóða að fylgja eftir umleitan formanns um að Ríkisendurskoðun geri stjórnsýsluendurskoðun á tilteknum þáttum í starfsemi Íslandspósts ohf.