Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 1997. Útgáfa 121a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um rannsóknarlögreglu ríkisins1)
1976 nr. 108 28. desember
1)Lögin falla úr gildi 1. júlí 1997, sbr. l. 90/1996, 42. gr.
1. gr. [Rannsóknarlögregla ríkisins hefur aðalstarfsstöð í Reykjavík eða nágrenni og lýtur yfirstjórn dómsmálaráðherra.] 1)
Hún skal hafa á að skipa starfsfólki, er sé sérhæft til að rannsaka ýmsar tegundir brota.
1)L. 5/1978, 1. gr.
2. gr. [Forseti Íslands skipar yfirmann rannsóknarlögreglu ríkisins og nefnist hann rannsóknarlögreglustjóri ríkisins.
Hann skal fullnægja lögmæltum skilyrðum til skipunar í héraðsdómaraembætti og hafa aflað sér þekkingar í þeim efnum, er varða eftirgrennslan brota.
Forseti skipar vararannsóknarlögreglustjóra ríkisins. Skal hann fullnægja sömu skilyrðum og rannsóknarlögreglustjóri ríkisins til skipunar í embætti. Vararannsóknarlögreglustjóri fer með vald rannsóknarlögreglustjóra í fjarveru eða forföllum rannsóknarlögreglustjóra eftir nánari ákvörðun hans.
Dómsmálaráðherra skipar annað starfslið rannsóknarlögreglu ríkisins, þ. á m. deildarstjóra og/eða fulltrúa með lögfræðiprófi.] 1)
1)L. 5/1978, 2. gr.
3. gr. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur með höndum lögreglurannsóknir brotamála í [stjórnsýsluumdæmum Reykjavíkur, Kópavogs og Hafnarfjarðar] 1) að því leyti sem þær eru ekki í höndum lögreglustjóra þar, samkvæmt ákvæðum þessara laga eða annarra réttarreglna.
Með sama hætti skal rannsóknarlögregla ríkisins hafa með höndum rannsóknir brotamála í [stjórnsýsluumdæmum Keflavíkur og Keflavíkurflugvallar] 1) þegar dómsmálaráðherra ákveður.
1)L. 92/1991, 70. gr.
4. gr. Rannsóknarlögregla ríkisins skal veita lögreglustjórum … 1) hvar sem er á landinu, aðstoð við rannsókn brotamála, þegar þeir óska og rannsóknarlögreglustjóri og/eða ríkissaksóknari telja það nauðsynlegt. Ríkissaksóknari getur og falið rannsóknarlögreglu ríkisins rannsóknir einstakra mála hvar sem er á landinu, þegar hann telur þess þörf. Loks getur rannsóknarlögreglustjóri að eigin frumkvæði tekið í sínar hendur rannsókn máls utan þeirra umdæma, sem upp eru talin í 3. gr., en tilkynna skal hann viðkomandi lögreglustjóra um málið svo fljótt sem verða má, enda ber honum að veita rannsóknarlögreglu ríkisins alla nauðsynlega aðstoð. Ríkissaksóknari sker úr ágreiningi, sem rísa kann milli rannsóknarlögreglustjóra ríkisins og viðkomandi lögreglustjóra í sambandi við lögreglurannsókn.
1)L. 92/1991, 70. gr.
5. gr. Rannsóknarlögregla ríkisins heldur skrá um myndir og fingraför … 1) og geymir gögn samkvæmt reglum, 2) er dómsmálaráðherra setur.
Lögreglustjórar skulu senda rannsóknarlögreglu ríkisins eintök mynda og fingrafara … 3)
1)L. 19/1991, 194. gr. 2)Rg. 152/1979. 3)L. 92/1991, 70. gr.
6. gr. Við embætti lögreglustjóra í umdæmum, þar sem rannsóknarlögregla ríkisins hefur með höndum lögreglurannsóknir brotamála, sbr. 3. gr., skulu starfa sérstakar rannsóknarlögregludeildir undir stjórn viðkomandi lögreglustjóra.
Deildir þessar skulu annast rannsókn eftirgreindra málaflokka:
1. Umferðarslys og brot á umferðarlögum.
2. Brot á lögreglusamþykktum.
3. Brot á áfengislögum, önnur en þau, er varða ólögmætan innflutning áfengis.
4. Brot á lögum um tilkynningar aðsetursskipta.
5. Aðra málaflokka, sem ákveðið kann að verða í reglugerð að fela viðkomandi lögreglustjórum, sbr. 9. gr. laga þessara.
7. gr. Við lögreglustjóraembætti utan þeirra umdæma, sem upp eru talin í 3. gr., skulu starfa sérstakar rannsóknarlögregludeildir samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðherra og eftir því sem fé er veitt til í fjárlögum.
Deildir þessar skulu annast lögreglurannsóknir, aðrar en þær, sem falla undir rannsóknarlögreglu ríkisins samkvæmt ákvæðum laga þessara.
8. gr. [Þegar rannsóknarlögreglustjóri er svo riðinn við mál eða aðila, að hann mætti eigi gegna dómarastörfum í því, skal hann tilkynna það dómsmálaráðherra. Þegar ráðherra berst slík tilkynning eða hann fær vitneskju um þetta með öðrum hætti, skipar hann vararannsóknarlögreglustjóra eða annan löghæfan mann til meðferðar þess máls, sbr. 2. mgr. 2. gr.] 1)
Þegar dómsmálaráðherra skipar mann til að fara með einstakt mál samkvæmt framansögðu, ákveður hann honum þóknun.
1)L. 5/1978, 3. gr.
9. gr. Dómsmálaráðherra setur nánari reglur 1) um framkvæmd laga þessara.
Hann setur og reglur um samvinnu og starfsskiptingu milli lögreglustjóra og rannsóknarlögreglu ríkisins.
1)Rg. 253/1977, sbr. 315/1986 og 26/1994 (um samvinnu og starfsskiptingu milli lögreglustjóra og rannsóknarlögreglu ríkisins). Rg. 433/1988 (um að bera kennsl á látna menn).
10. gr. Lög þessi öðlast gildi nú þegar og koma að fullu til framkvæmda 1. júlí 1977.