Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. maí 1999. Útgáfa 123b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um opinberar fjársafnanir
1977 nr. 5 24. mars
1. gr. Heimilt er stofnunum, félögum eða samtökum manna að gangast fyrir opinberum fjársöfnunum í sérhverjum löglegum tilgangi.
Nú gangast samtök fyrir fjársöfnun, og skulu þá minnst þrír menn bera ábyrgð á söfnuninni hverju sinni, og skulu a.m.k. tveir þeirra vera fjárráða íslenskir ríkisborgarar, sem lögheimili eiga hér á landi.
2. gr. Fjársöfnun er opinber, ef henni er beint til annarra en þeirra, sem tengdir eru persónulegum eða félagslegum tengslum við þá, sem fyrir slíkum fjársöfnunum standa, eða standa í sérstöku sambandi við þá.
3. gr. Tilkynna skal viðkomandi lögreglustjóra opinbera fjársöfnun, áður en hún hefst. Tilkynning skal send lögreglustjóra, þar sem stofnun eða félag hefur varnarþing.
Ef stofnun eða félag stendur ekki fyrir fjársöfnun, skal tilkynna hana til lögreglustjóra, þar sem einhver þeirra, sem ábyrgð bera á söfnuninni, á lögheimili.
Slík tilkynning skal bera með sér:
a. hver standi fyrir fjársöfnuninni,
b. hvenær fjársöfnun skuli fara fram,
c. hvar fjársöfnun skuli fara fram,
d. hvernig fjársöfnun skuli fara fram,
e. og í hvaða tilgangi fjársöfnun fer fram.
4. gr. Opinber fjársöfnun á götum eða í húsum er háð leyfi dómsmálaráðuneytisins. Fjársöfnun með keðjubréfum er óheimil.
5. gr. Fé því, sem safnast kann, skal komið fyrir á banka- eða gíróreikningi, sem stofnaður er í þessu sérstaka tilefni.
Óheimilt er að nota féð í öðrum tilgangi en upphaflega var ætlað, nema með leyfi dómsmálaráðuneytisins.
6. gr. Halda skal nákvæmt reikningshald yfir söfnunarfé og öll útgjöld við hverja fjársöfnun. Skal reikningshaldið endurskoðað af löggiltum endurskoðanda eða þeim, er dómsmálaráðuneytið kann að útnefna til slíks.
7. gr. Áður en 6 mánuðir eru liðnir frá því að fjársöfnun lýkur, skal reikningsyfirlit hennar birt a.m.k. einu sinni í dagblaði, vikublaði eða á annan hátt. Sé söfnunarfé undir þeirri upphæð, sem ákveðin er í reglugerð, nægir þó að tilkynna opinberlega, að reikningsyfirlit fjársöfnunarinnar sé til sýnis í a.m.k. 14 daga á nánar tilteknum stað.
Nú stendur söfnun yfir um lengri tíma en eitt ár, og skal þá með sama hætti birta opinberlega ársreikning innan 6 mánaða frá lokum hvers almanaksárs. Heimilt er lögreglustjóra að framlengja fresti þessa. Yfirlýsingu samkvæmt 2. málsl. 6. gr. skal og birta með sama hætti.
Viðkomandi lögreglustjóra skal og sent reikningsyfirlit söfnunarinnar ásamt tilkynningu um, hvar og hvenær birting skuli fara fram.
Nú liggja ekki fyrir gögn um notkun söfnunarfjár, þegar reikningi er lokað, og skal þá endurskoðandi síðar gefa skýrslu þar um.
8. gr. Lög þessi gilda ekki um:
1. Söfnun á notuðum verðlitlum hlutum.
2. Fjársafnanir á vegum dagblaðs í opinberu góðgerðarskyni, ef viðkomandi dagblað birtir skrá yfir framlag allra gefenda. Enn fremur skal viðkomandi dagblað birta viðurkenningu þeirra, er veita fénu viðtöku að söfnun lokinni.
3. Fjársafnanir á samkomum.
9. gr. Dómsmálaráðuneytið getur sett nánari reglur um framkvæmd laga þessara.
10. gr. Brot gegn lögum þessum varða sektum, nema þyngri refsing liggi við að öðrum lögum.