Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2009. Útgáfa 137. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim
1993 nr. 25 7. apríl
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 7. apríl 1993. Breytt með l. 87/1995 (tóku gildi 1. júlí 1995), l. 73/1996 (tóku gildi 19. júní 1996), l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 31/2001 (tóku gildi 16. maí 2001), l. 63/2003 (tóku gildi 7. apríl 2003), bbl. 103/2003 (tóku gildi 1. júlí 2003), l. 116/2003 (tóku gildi 12. nóv. 2003), l. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006), l. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008) og l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008).
I. kafli.
Tilgangur, gildissvið og yfirstjórn.
1. gr. Tilgangur laganna er:
a. að stuðla að góðu heilsufari dýra í landinu og koma í veg fyrir að nýir smitsjúkdómar berist til landsins,
b. að fylgjast með og hindra útbreiðslu dýrasjúkdóma og vinna að útrýmingu þeirra,
c. að tryggja að búfjárafurðir, framleiddar í landinu, verði sem heilnæmastar.
2. gr. Lög þessi taka til allra sjúkdóma í dýrum, jafnt húsdýrum, gæludýrum og villtum dýrum.
3. gr. [Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) hefur yfirstjórn þeirra mála sem lög þessi taka til.

[Matvælastofnun]
1) skal vera ráðherra til aðstoðar og ráðuneytis um allt er lýtur að dýrasjúkdómum og framkvæmd laganna.

Héraðsdýralæknar skulu hver í sínu umdæmi hafa eftirlit með og vinna að bættu heilsufari dýra og fylgjast með heilbrigðisástandi þeirra og vera á verði gegn nýjum dýrasjúkdómum er kunna að berast til landsins eða milli sóttvarnarsvæða.
1)L. 167/2007, 64. gr.
II. kafli.
Orðskýringar.
4. gr.
Búfé: Hross, nautgripir, sauðfé, geitur, svín, loðdýr, kanínur og alifuglar, auk þess eldisfiskar og önnur dýr sem haldin eru til nytja. Rísi ágreiningur um hvað falla skuli undir hugtakið búfé sker [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) úr þeim ágreiningi.
Dýr: Öll dýr, bæði hryggdýr og hryggleysingjar.
Dýrasjúkdómur: Smitsjúkdómur sem orsakast af völdum örvera eða sníkjudýra, efnaskiptasjúkdómur, erfðasjúkdómur, eitranir og aðrir sjúkdómar sem lög þessi ná til.
Gæludýr: Öll dýr sem haldin eru til afþreyingar.
Smitsjúkdómur: Sjúkdómur eða smit sem beint eða óbeint getur borist frá einu dýri til annars eða milli manna og dýra.
Sóttvarnarsvæði: Landsvæði sem afmarkast af varnarlínum, ám, vötnum, sjó eða öræfum sem ásamt fyrirskipaðri vörslu og öðrum varúðarráðstöfunum mynda farartálma eða fullkomna hindrun á samgangi dýra.
Varnarlínur: Mörk sóttvarnarsvæða, þar með taldar girðingarlínur sem skiptast í aðalvarnarlínur og aukavarnarlínur.
1)L. 167/2007, 64. gr.
III. kafli.
Tilkynningarskylda og sjúkdómsgreining.
5. gr. Hverjum þeim, sem hefur ástæðu til að ætla að dýr sé haldið smitsjúkdómi sem lög þessi ná yfir, ber án tafar að tilkynna það hverjum þeim dýralækni sem til næst eða lögreglu. Skylt er lögreglu að hafa strax samband við dýralækni. Telji dýralæknir ástæðu til skal hann tafarlaust gera ráðstafanir til að fá sjúkdómsgreiningu sína staðfesta og hindra útbreiðslu sjúkdómsins.

Leiði rannsókn í ljós eða dýralæknir fær grun um að um sé að ræða smitsjúkdóm, sem tilgreindur er í [viðaukum 1A og 1B]
1) með lögum þessum eða smitsjúkdóm áður óþekktan hér á landi, skal dýralæknir án tafar tilkynna það [Matvælastofnun].
2) Jafnframt ber honum að grípa til varúðarráðstafana gegn útbreiðslu eða til útrýmingar sjúkdóminum, einnig að banna afhendingu dýrsins eða afurða þess og sjá um að einangra dýrið og önnur dýr sem kunna að bera smit, svo og nánasta umhverfi þeirra. Enn fremur skal hann sjá um að hlutir og vörur, sem komist hafa í snertingu við dýrið, verði sótthreinsuð eða þeim eytt og að aflífa dýrið eða gera aðrar þær ráðstafanir sem nauðsynlegar teljast. Eigendum dýra er skylt að veita alla nauðsynlega aðstoð vegna varúðarráðstafana sem framkvæmdar eru á grundvelli þessarar málsgreinar.

Sé hins vegar um að ræða sjúkdóm sem tilgreindur er í viðauka 2 skal dýralæknir hlutast til um að framkvæmdar séu frekari rannsóknir og málið tilkynnt að því marki sem nauðsynlegt er.
1)L. 31/2001, 1. gr. 2)L. 167/2007, 64. gr.
6. gr. Öllum þeim, sem starfa að dýralækningum, er skylt að fylgja fyrirmælum [Matvælastofnunar]
1) um skráningu dýrasjúkdóma og gera þær ráðstafanir til varnar og upprætingar sjúkdómum sem [stofnunin]
2) mælir fyrir um eða tilgreindir eru í reglugerðum og auglýsingum þar um.
1)L. 167/2007, 64. gr. 2)L. 76/2005, 9. gr.
7. gr. [Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) setur með reglugerð
2) nánari ákvæði um varúðarráðstafanir sem nauðsynlegar eru ef upp kemur grunur um smitsjúkdóma sem tilgreindir eru í [viðaukum 1A og 1B]
3) eða ef þeirra verður vart og nýja, áður óþekkta sjúkdóma hér á landi, þar með talin ákvæði um sóttvörn og samgang við svæði þar sem sjúkdómur hefur komið upp, einangrun dýra, rannsóknir, aflífun í rannsóknarskyni, sýnatöku og skýrslugerð og eyðingu dýrahræja.
1)L. 167/2007, 64. gr. 2)Rg. 447/2005, sbr. 710/2006. 3)L. 31/2001, 2. gr.
IV. kafli.
Varnaraðgerðir.
8. gr. [Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) getur samkvæmt lögum þessum og að fengnum tillögum [Matvælastofnunar]
1) fyrirskipað hverjar þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að útrýma eða hindra útbreiðslu þeirra dýrasjúkdóma sem taldir eru upp í [viðaukum 1A, 1B og 2]
2) og til að afstýra hættu og tjóni af völdum útbreiðslu þessara sjúkdóma. Ráðstafanir þessar ná yfir:
1. Dýr:
a. rannsóknir, þar með talda sýnatöku til sjúkdómsgreiningar,
b. sjúkdómsmeðferð,
c. ónæmisaðgerðir,
d. merkingar og einangrun,
e. eftirlit,
f. förgun og eyðingu,
[g. bann við innflutningi eða útflutningi].
3)
2. Dýraafurðir, fóður, húsdýraáburð og annað sem mengað er og kann að bera smit:
a. rannsóknir á mögulegu smitefni,
b. gerilsneyðingu, sótthreinsun og dauðhreinsun,
c. eyðingu,
[d. bann við innflutningi eða útflutningi].
3)
3. Byggingar, starfssvæði, vélar, verkfæri og farartæki:
a. hreinsun og sótthreinsun,
b. eftirlit og einangrun.
4. Eigendur og umráðaaðila dýra, starfsfólk þeirra, fatnað og tæki sem kunna að bera smitefni:
a. rannsóknir, þar með talda sýnatöku til sjúkdómsgreiningar,
b. hreinsun, sótthreinsun og eyðingu fatnaðar.
1)L. 167/2007, 64. gr. 2)L. 31/2001, 3. gr. 3)L. 116/2003, 9. gr.
V. kafli.
Fyrirbyggjandi aðgerðir.
9. gr. Heimilt er [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) að takmarka eða banna dýrahald á afmörkuðum svæðum þar sem ætla má að heilbrigði dýra sé sérstök hætta búin að mati [Matvælastofnunar].
1)
1)L. 167/2007, 64. gr.
10. gr. [Til að hindra að dýrasjúkdómar berist til landsins er óheimilt að flytja til landsins eftirtaldar vörutegundir:
a. Hey, hálm, alidýraáburð, gróðurmold og rotmassa blandað alidýraáburði, hráar og lítt saltaðar sláturafurðir, unnar og óunnar, ósótthreinsuð hrá skinn og húðir, kjötmjöl, beinamjöl, fóðurvörur unnar úr afurðum eða úrgangi spendýra og fugla sem ekki hafa hlotið viðeigandi hitameðferð, blóð og blóðvatn, ógerilsneydda mjólk eða vörur unnar úr henni og hrá egg.
b. Ull, notaða poka eða aðrar umbúðir, óhreinan fatnað og tuskur, fiður, fjaðrir, dún, stráteppi, strákörfur og óunnið dýrahár, enn fremur notaðan reiðfatnað, reiðtygi og annað sem notað hefur verið við geymslu og flutninga á dýrum og dýraafurðum.
c. Hvers konar notaðan búnað til stangveiði.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) heimilt að leyfa innflutning á vörum þeim sem taldar eru upp í a–c-liðum að fengnum meðmælum yfirdýralæknis, enda þyki sannað að ekki berist smitefni með þeim er valda dýrasjúkdómum. Um framkvæmd þessarar greinar fer eftir ákvæðum samningsins um beitingu ráðstafana um hollustuhætti og heilbrigði dýra og plantna í 1. viðauka A við samninginn um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

Heimilt er [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra],
1) að fengnum meðmælum yfirdýralæknis, að leyfa í rannsóknarskyni innflutning á vörutegundum sem upp eru taldar í a-lið 1. mgr. Ef hey eða hálmur er notað sem pökkunarefni fyrir aðra vöru sem flutt er inn og ekki er háð sérstöku leyfi má flytja heyið eða hálminn inn án leyfis ef telja má að slíkt pökkunarefni hafi ekki smithættu í för með sér. Þá getur ráðherra ákveðið með reglugerð að ákvæði 1. mgr. skuli ekki gilda fyrir einstakar vörutegundir sem þar eru taldar upp ef varan sótthreinsast við tilbúning eða sérstök sótthreinsun er framkvæmd fyrir innflutning og vörunni fylgir vottorð um uppruna, vinnslu og sótthreinsun.

[Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) er heimilt að banna með auglýsingu innflutning á öðrum vörum sem hætta telst á að smitefni geti borist með.]
2)
1)L. 167/2007, 64. gr. 2)L. 87/1995, 26. gr.
11. gr. [Matvælastofnun]
1) er heimilt að takmarka eða banna flutning dýra, vöru eða tækja milli eða innan sóttvarnarsvæða telji [stofnunin]
2) að það valdi eða sé líklegt til að valda útbreiðslu sjúkdóma meðal dýra.

[[Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) er í samráði við [Matvælastofnun]
1) jafnframt heimilt að takmarka eða banna inn- og útflutning tiltekinna dýra og afurða þeirra, til lengri eða skemmri tíma, til tiltekins lands eða landsvæðis telji hann að slíkur flutningur valdi eða sé líklegur til að valda útbreiðslu sjúkdóma.]
3)
1)L. 167/2007, 64. gr. 2)L. 76/2005, 9. gr. 3)L. 116/2003, 10. gr.
12. gr. [Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) ákveður, að fengnum tillögum [Matvælastofnunar],
1) hvaða varnarlínum skuli haldið við. Á sama hátt getur ráðherra ákveðið að setja upp nýjar varnarlínur þar sem nauðsyn krefur. Girðingarstæði skulu valin þar sem best skilyrði eru frá náttúrunnar hendi og valdi sem minnstum spjöllum og jarðraski. Upprekstrarfélög og einstakar jarðir má svipta aðgangi að landi sínu sé slíkt nauðsynlegt, enda skal þá leitast við að bæta það með tilsvarandi landi í skiptum ef unnt er. Verði ekki samkomulag um landaskipti eða bætur fyrir missi landsnytja skulu bætur metnar af dómkvöddum matsmönnum. Bætur þær, sem ákveðnar eru, greiðast af ríkissjóði og miðast við notagildi landsins.

[Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) ákveður með auglýsingu skiptingu varnarlína í aðalvarnarlínur og aukavarnarlínur að fengnum tillögum [Matvælastofnunar].
1)
1)L. 167/2007, 64. gr.
13. gr. Hræ dýra, sláturúrgang og sláturafurðir, sem ekki eru nýttar eða eru óhæfar til manneldis, skal meðhöndla, geyma, flytja eða eyða á þann hátt að ekki valdi hættu á útbreiðslu smitefna eða annarra skaðlegra efna. Sama gildir um annan úrgang frá dýrum. Afurðir þessar er enn fremur óheimilt að nota sem dýrafóður nema samkvæmt sérstöku leyfi [Matvælastofnunar].
1) Við urðun þeirra skal leita umsagnar viðkomandi heilbrigðiseftirlits.

Þeir sem meðhöndla, geyma eða flytja hræ og sláturúrgang til eyðingar eða dauðhreinsunar eða ætla að nýta það til fóðurgerðar skulu afla sér heimildar [Matvælastofnunar]
1) áður en starfsemin hefst.
1)L. 167/2007, 64. gr.
14. gr. [Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) setur með reglugerð nánari ákvæði um meðferð, geymslu og notkun matarleifa og dýraafurða sem ætlaðar eru til fóðurs eða fóðurgerðar. Þar skal kveðið á um leyfi til fóðurgerðar, sbr. 13. gr., starfrækslu fóðurstöðva og hvaða skilyrðum þær þurfa að fullnægja, sýnatöku og eftirlit með slíkri starfsemi til að koma í veg fyrir smithættu.
1)L. 167/2007, 64. gr.
15. gr. [Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) setur reglur
2) um sæðistöku og sæðingar, töku eggja og fósturvísa, meðferð þeirra og innlögn í dýr. Einnig um búnað, tilhögun og rekstur sæðingastöðvar og heilbrigðiskröfur varðandi dýr sem tekið er úr sæði, egg eða fósturvísar til flutnings, svo og heilbrigðiskröfur um sæði, egg og fósturvísa sem ætlaðir eru til sæðinga eða eggjaflutninga. Þá setur [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) reglur um heilbrigðiskröfur sem gerðar eru varðandi þau dýr sem notuð eru sem fósturmæður.
1)L. 167/2007, 64. gr. 2)Rg. 787/2003, sbr. 114/2009.
VI. kafli.
Kostnaður og bætur.
16. gr. Þóknun og ferðakostnaður vegna starfa dýralæknis eða annarra sem takast á hendur verkefni sem leiðir af framkvæmd þessara laga samkvæmt fyrirmælum [Matvælastofnunar]
1) skal greiddur úr ríkissjóði.
1)L. 167/2007, 64. gr.
17. gr. Ríkissjóður greiðir kostnað vegna einangrunar búfjár sem ákveðin er til varnar sjúkdómum sem taldir eru upp í [viðauka 1A]
1) með lögum þessum, svo og efniskostnað vegna nauðsynlegrar hreinsunar og sótthreinsunar, einnig kostnað vegna aflífunar, eyðingar hræja og notkunar tækja sem þarf til fyrrgreindra verka. Ríkissjóður greiðir kostnað vegna einangrunar og gæslu svæða, enda sé einangrunin fyrirskipuð af [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra].
2) Eigendum búfjár er skylt að leggja fram endurgjaldslaust alla ófaglega vinnu og aðstoð við hreinsun, sótthreinsun og aflífun dýra.
1)L. 31/2001, 5. gr. 2)L. 167/2007, 64. gr.
18. gr. Kostnaður vegna einangrunar og rannsókna á öðrum sjúkdómum en taldir eru upp í [viðauka 1A]
1) greiðist af eigendum dýranna að hluta eða öllu leyti samkvæmt ákvörðun [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra].
2)
1)L. 31/2001, 6. gr. 2)L. 167/2007, 64. gr.
19. gr. Stofnkostnaður og viðhald aðalvarnarlína greiðist úr ríkissjóði. Ríkissjóður leggur til efni í aukavarnarlínur, en uppsetning, rekstur og viðhald þeirra greiðist af viðkomandi sveitarsjóðum. Rísi ágreiningur um skiptingu kostnaðar við aukavarnarlínur sker [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) úr þeim ágreiningi að fenginni umsögn [Matvælastofnunar].
1)
1)L. 167/2007, 64. gr.
20. gr. Eigendur búfjár, sem fargað er samkvæmt fyrirmælum [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) að tillögum [Matvælastofnunar],
1) eiga rétt á bótum úr ríkissjóði.

Bætur ríkissjóðs svara til verðgildis afurða og rekstrartaps sem sannanlega leiðir af eyðingu dýranna. Heimilt er að víkja frá ákvæðum þessarar málsgreinar um bætur þegar fyrirskipaður er niðurskurður á kynbótagripum.

Sé unnt að nýta afurðir dýra að hluta eða í heild skal verðmæti þeirra afurða koma til frádráttar heildarbótagreiðslum. Ekki koma bætur fyrir dýr sem eru óveruleg að verðmæti, nema því aðeins að til þess liggi gildar ástæður.

Bótaskylda ríkissjóðs samkvæmt lögum þessum nær eingöngu til búfjár.
1)L. 167/2007, 64. gr.
21. gr. Réttur til bóta samkvæmt lögum þessum glatast að öllu leyti eða að hluta ef eigandi dýra hefur ekki farið eftir ákvæðum þessara laga eða reglugerðum og öðrum fyrirmælum settum samkvæmt þeim. Sama gildir ef eigandi hefur orðið sér úti um dýr sem hann vissi eða mátti vita með tilliti til aðstæðna að haldið var sjúkdómi sem lög þessi taka til eða valdið því með ásetningi eða vanrækslu að dýr hans smitaðist.

Bætur greiðast ekki ef dýr, sem flutt hafa verið til landsins, hafa sýkst af sjúkdómi áður en sex mánuðir eru liðnir frá innflutningi þeirra.
VII. kafli.
Ýmis ákvæði.
22. gr. [Matvælastofnun],
1) héraðsdýralæknum og fulltrúum þeirra skal hvenær sem er vera heimill aðgangur að húsnæði, búum og fyrirtækjum þar sem dýr, eða afurðir þeirra, eru geymd og skulu þeim veittar allar nauðsynlegar upplýsingar vegna eftirlits og rannsókna sem óskað er eftir á grundvelli laga þessara.
1)L. 167/2007, 64. gr.
23. gr. Skylt er að viðhalda varnarlínum svo lengi að fullvíst þyki að búfjársjúkdómar, sem valda stórfelldu tjóni, geti ekki leynst í búfé öðrum megin línunnar þannig að samgangur milli svæðanna auki á sýkingarhættu fyrir búfé að mati [Matvælastofnunar].
1)

Því aðeins er [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) heimilt að leggja niður varnarlínur að fram hafi farið ítarlegt heilbrigðiseftirlit á búfé á þeim varnarsvæðum sem að línunni liggja og að fengnum meðmælum [Matvælastofnunar].
1) Gefa skal aðliggjandi sveitarfélögum kost á að eignast girðingarnar endurgjaldslaust, enda taki þau ábyrgð á að girðing valdi ekki slysum eða tjóni.
1)L. 167/2007, 64. gr.
24. gr. [Matvælastofnun]
1) er heimilt að fyrirskipa á kostnað eigenda sérstakar merkingar á búfé þar sem slíkt er nauðsynlegt. [Þá getur [Matvælastofnun]
1) bannað hvers konar litamerkingar á búfé á ákveðnum svæðum.]
2)
1)L. 167/2007, 64. gr. 2)L. 76/2005, 10. gr.
25. gr. Óheimilt er að flytja sauðfé til lífs yfir varnarlínur [nema þegar um er að ræða endurnýjun bústofns vegna niðurskurðar af völdum sjúkdóma og/eða vegna búháttabreytinga].
1) Sleppi sauðfé yfir varnarlínur skal því slátrað. Merkja skal líffæri úr fénu og senda án tafar til rannsóknar. Eigandi skal fá bætur samkvæmt ákvörðun [Matvælastofnunar]
2) fyrir sauðfé sem slátrað er enda hafi líffæri verið send til rannsóknar. Nautgripi og geitur má því aðeins flytja yfir varnarlínur til lífs að fram fari sérstök rannsókn á heilbrigði þeirra. [Matvælastofnun]
2) getur leyft flutning á tilrauna- og kynbótagripum yfir varnarlínur.
1)L. 76/2005, 11. gr. 2)L. 167/2007, 64. gr.
26. gr. Hlíti eigandi eða umráðaaðili dýra ekki ákvörðun [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) samkvæmt lögum þessum er viðkomandi lögreglustjóra skylt að hlutast til um framkvæmd á fyrirmælum ráðherra. Óheimilt er að farga dýrum eða taka þau frá aðila eða neyta annarra þeirra úrræða sem lög þessi kveða á um og valdið geta eiganda þeirra umtalsverðum kostnaði nema [Matvælastofnun]
1) hafi samþykkt slíkar aðgerðir. Gefa skal eiganda og umráðaaðila kost á að tjá sig um slíkar aðgerðir áður en til þeirra er gripið.
1)L. 167/2007, 64. gr.
27. gr. …
1)
1)L. 31/2001, 9. gr.
28. gr. Komi upp alvarlegur smitsjúkdómur í dýrum á afmörkuðum svæðum er [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) heimilt, að fenginni tillögu [Matvælastofnunar],
1) að skipa þriggja manna [smitsjúkdómanefnd]
2) er verði [Matvælastofnun]
1) til aðstoðar við framkvæmd hvers konar varnaraðgerða og við útrýmingu sjúkdómsins. [Smitsjúkdómanefnd]
2) hefur ásamt [Matvælastofnun]
1) forgöngu um framkvæmd niðurskurðar, endurnýjun bústofns, hreinsun búfjár af svæðinu og nauðsynlega sótthreinsun.

…
2)
1)L. 167/2007, 64. gr. 2)L. 31/2001, 10. gr.
29. gr. [Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) setur með reglugerð
2) nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.

[[Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) skal setja sérstaka reglugerð um innflutning og útflutning sjávardýra í samráði við sjávarútvegsráðherra.]
3)

[[Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra]
1) skal setja sérstaka reglugerð
4) um innflutning og útflutning eldisdýra og afurða þeirra til að hindra útbreiðslu smitsjúkdóma.]
5)
1)L. 167/2007, 64. gr. 2)Rg. 260/1980 (um útbúnað alifuglasláturhúsa o.fl.), sbr. 417/2002 og 688/2002. Rg. 219/1991 (um aðbúnað og heilbrigðiseftirlit á svínabúum), sbr. 577/2009. Rg. 251/1995 (um aðbúnað og sjúkdómavarnir á alifuglabúum), sbr. 904/2001 og 701/2002. Rg. 200/1998 (um búfjármörk o.fl.), sbr. 30/2000, 221/2002, 1105/2005 og 324/2009. Rg. 557/1998 (um kanínurækt). Rg. 60/2000 (um eftirlit með
aðbúnaði og heilbrigði sauðfjár og geitfjár o.fl.). Augl. 635/2001 (um bann við flutningi sláturfjár yfir sauðfjárveikivarnarlínur). Rg. 651/2001 (um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar), sbr. 726/2004 og 807/2006. Rg. 665/2001 (um viðbrögð við smitsjúkdómum). Rg. 438/2002 (um aðbúnað nautgripa og eftirlit með framleiðslu mjólkur o.fl.). Rg. 787/2003 (um búfjársæðingar og flutning fósturvísa). Rg. 509/2004 (um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins), sbr. 732/2007. Rg. 289/2005 (um merkingar búfjár), sbr. 972/2005 og 323/2009. Rg. 160/2006 (um aðbúnað, umhirðu og heilbrigðiseftirlit hrossa). Rg. 820/2007 (um meðferð og nýtingu á slátur- og dýraleifum), sbr. 679/2008 og 930/2008. Rg. 933/2007 (um bólusetningu sauðfjár og geitfjár til varnar garnaveiki). Rg. 550/2008 (um flutning líflamba milli landsvæða). 3)L. 63/2003, 2. gr. 4)Rg. 527/2003 (um sýnatökuáætlanir og greiningaraðferðir við greiningu og staðfestingu á fisksjúkdómunum brisdrepi, iðradrepi og veirublæði). Rg. 448/2005 (um eftirlit með heilbrigði eldisdýra og afurðum þeirra í viðskiptum innan EES-svæðisins), sbr. 711/2006. Rg. 449/2005 (um eftirlit með heilbrigði eldisdýra sem flutt eru til EES-svæðisins frá þriðju ríkjum), sbr. 712/2006. Rg. 985/2005 (um fiskeldisstöðvar). Rg. 739/2006 (um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins nr. 282/2004 um að taka upp vottorð til að tilkynna um komu dýra til Bandalagsins frá þriðju löndum og um heilbrigðiseftirlit með þeim og reglugerðar Evrópusambandsins nr. 585/2004 um breytingu á reglugerð Evrópusambandsins nr. 282/2004). Rg. 740/2006 (um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins nr. 136/2004 um reglur um heilbrigðiseftirlit á skoðunarstöðvum Bandalagsins á landamærum með afurðum sem eru fluttar inn frá þriðju löndum). Rg. 741/2006 (um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins nr. 599/2004 um að samþykkja samræmda fyrirmynd að vottorði og skoðunarskýrslu í tengslum við viðskipti innan Bandalagsins með dýr og afurðir úr dýraríkinu). Rg. 1254/2008 (um heilbrigðiskröfur vegna lagareldisdýra og afurða þeirra og um forvarnir og varnir gegn tilteknum sjúkdómum í lagardýrum), sbr. 303/2009. 5)L. 116/2003, 11. gr.
VIII. kafli.
Refsiákvæði og gildistaka.
30. gr. Brot gegn lögum þessum, reglugerðum og fyrirmælum gefnum samkvæmt þeim varða sektum [eða fangelsi allt að 2 árum].
1)

…
2)
1)L. 82/1998, 206. gr. 2)L. 88/2008, 233. gr.
31. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. …
Ákvæði til bráðabirgða. Reglugerðir, auglýsingar og önnur fyrirmæli sett samkvæmt
lögum nr. 11/1928, með síðari breytingum,
lögum nr. 23/1956, með síðari breytingum, og
lögum nr. 22/1977, um sauðfjárbaðanir, skulu halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þau stangast ekki á við lög þessi þar til nýjar reglugerðir, auglýsingar eða önnur fyrirmæli hafa öðlast gildi.
1)
1)Eldri stjórnvaldsfyrirmæli sem hér er vísað til munu vera rg. 76/1952, rg. 135/1952,
augl. A 97/1955, rg. 14/1957,
augl. 10/1964, rg. 27/1970, rg. 423/1979, rg. 290/1980, rg. 444/1982, sbr. 340/1986, rg. 96/1987,
augl. 155/1987.
[Viðaukar 1A, 1B og 2. …]1)
1)L. 31/2001, 11. gr. Um viðauka þessa vísast til Stjtíð. A 2001, bls. 58–63.