Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um selaskot á Breiðafirði og uppidráp
1925 nr. 30 27. júní
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 23. september 1925. Breytt með: L. 61/1932 (tóku gildi 1. jan. 1933; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 95. gr.). L. 116/1990 (tóku gildi 31. des. 1990).
1. gr.

Öll selaskot skulu hér eftir bönnuð á Breiðafirði og fjörðum þeim, sem inn úr honum ganga, fyrir innan línu, sem hugsast dregin frá Eyrarfjalli, sunnan Breiðafjarðar, í Stagley og frá Stagley hálfa mílu frá Oddbjarnarskeri nyrðra í Bjargtanga í Barðastrandarsýslu. …
1)

Í selalátrum á bannsvæðinu er engum öðrum en eigendum eða umráðamönnum látranna heimilt að rota seli eða drepa uppi.
1)L. 61/1932, 94. gr.
2. gr.

[Brot gegn 1. gr. varðar sektum.

Skotvopn og veiðifang má gera upptækt, sbr.
69. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.]
1)
1)L. 116/1990, 15. gr.