Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um þátttöku Íslands í stofnun gjaldeyrissjóðs og alþjóðabanka samkvæmt tillögum Bretton Woods fundarins og um lántöku í því skyni
1945 nr. 105 21. desember
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 31. desember 1945. Breytt með: L. 30/1959 (tóku gildi 31. júlí 1959). L. 30/1960 (tóku gildi 1. júní 1960). L. 103/1999 (tóku gildi 1. jan. 2000).
1. gr.

Ríkisstjórn Íslands er heimilt fyrir hönd hins íslenska lýðveldis að gerast aðili að stofnun gjaldeyrissjóðs og alþjóðabanka, samkvæmt tillögum, sem samþykktar voru í júlí 1944 á fundi hinna sameinuðu þjóða og þeirra þjóða, sem með þeim vinna (United and Associated Nations) í Bretton Woods í Bandaríkjunum.
2. gr. …
1)
1)L. 103/1999, 1. gr.
3. gr.

[Til þess að standa straum af framlögum ríkisins til gjaldeyrissjóðsins og alþjóðabankans heimilast ríkisstjórninni að taka innanríkislán, er jafngildi allt að 3,5 milljónum dollara.]
1)
1)L. 30/1959, 1. gr.
4. gr. …
1)
1)L. 30/1960, 14. gr.
5. gr.

Skylt er öllum þeim, sem skulda fé í erlendum gjaldeyri, að gefa Hagstofu Íslands skýrslu um skuldir sínar ársfjórðungslega í því formi, er hún fyrirskipar.